Sögur Fréttir
Nýskrá »
Innskrá »
 

Hvernig virkar sögustund.is?

Í grófum dráttum:

1. Þú skoðar sögurnar í listanum. Þú getur hlustað á hljóðdæmi og skoðað sögurnar eftir flokkum og þannig valið þær sögur sem þér líst best á.

2. Þú kaupir þér sögur.  Í því felst að þú eignast sögurnar,  vistar þær á harða diskinn í tölvunni þinni og hlustar eins oft og þú kýst. Til að kaupa sögur smellirðu á “Bæta í körfu” við útvaldar sögur og síðan smellirðu á “Ganga frá kaupum” í körfunni þinni.

3. Þú greiðir fyrir sögurnar. Þú millifærir úr heimabankanum þínum uppgefinn kostnað á uppgefið bankanúmer. (Leiðbeiningar birtast þér jafnóðum og þú ferð í gegnum kaupferlið).  Þú þarft að láta heimabankann þinn senda kvittun á netfangið greitt@sogustund.is .

4. Þú sækir sögurnar (downloadar). Þegar kvittun um millifærslu hefur borist okkur eru sögurnar þínar tilbúnar til niðurhals. Þú finnur þær undir “Mín síða”. Þú getur sótt hverja sögu þrisvar sinnum.  Þetta á aðeins að taka örfáar mínútur.

Þarf ég að vera innskráður til að versla?

Já, til að geta keypt sögu þarft þú að stofna notendareikning.  Þú smellir á “nýskráning” efst í hægra horninu. Nýskráningarferlið er einfalt og fljótlegt. Þú gefur upp netfang, velur þér lykilorð og færð tölvupóst um hæl. Þar þarftu að smella á staðfestingarslóð sem virkjar skráninguna þína og þú getur hafið kaup á efni.

Er hægt að greiða með greiðslukorti á sögustund.is?

Nei. Eins og stendur er aðeins hægt að greiða með millifærslu úr heimabanka. Þú færð samt sem áður sögurnar þínar afhentar á örfáum mínútum.

Hvernig kemur SOS að sögustund.is?

Forsprakkar að sögustund.is ákváðu að styrkja SOS barnaþorpin á Íslandi. SOS stendur ekki á bakvið síðuna. Öll innkoma af seldum sögum (að frádregnum vsk) rann beint til SOS barnaþorpanna fyrstu tvo mánuðina eftur opnun (6. júní - 6. ágúst 2009) og hluti af ágóða eftir það.

Sögurnar mínar birtast ekki, af hverju?

Eftir að þú hefur borgað með millifærslu ættu ekki að líða meira en 5 mínútur þar til sögurnar eru tilbúnar. Ef meira en 10 mínútur eru liðnar er líklegt að eitthvað hafi farið úrskeiðis. Smelltu samt aftur á “MÍN SÍÐA” til að fullvissa þig um að sögurnar þínar séu ekki þar.

Það sem getur farið úrskeiðis er eftirfarandi: Þú gætir hafað gleymt að senda kvittun úr netbankanum þínum á greitt@sogustund.is eða gert ásláttarvillu í netfanginu. Þú gætir einnig hafað gert ásláttarvillu í  greiðsluupphæð.  Ef eitthvað af þessu er raunin yrði árangursríkt fyrir þig að endurtaka ferlið og greiða fulla upphæð aftur. Sendu okkur tölvupóst á sogustund@sogustund.is og við leysum vandann við fyrsta tækifæri, hvort sem það er að hleypa í gegn niðurhali á sögunum þínum eða að endurgreiða þér það sem þú hefur greitt umfram afhendingu.

Hvernig sæki ég sögurnar (downloada)?

Til að sækja sögurnar þínar ferðu inn í “MÍN SÍÐA”. Þar, undir “sögurnar mínar” birtist listi af þeim sögum sem eru tilbúnar til niðurhals. Þú einfaldlega smellir á nafn sögunnar og þá ætti netvafrinn þinn að opna glugga þar sem þú getur valið annað hvort að vista sögurnar eða opna þær.  Öruggast myndi teljast að velja “save file” og vista sögurnar þar sem þú finnur þær aftur. Það fer eftir stillingum í netvafranum þínum hvar sögurnar þínar vistast. Ef þú finnur ekki sögurnar þínar eftir að hafað downloadað þeim skaltu nota” search/find/leita” til að skanna harða diskinn þinn og finna sögurnar.  Ef þú ert enn í vandræðum skaltu senda okkur línu á sogustund@sogustund.is og við munum leggja okkur fram við að leysa vandamálið með þér.