Sögur Fréttir
Nýskrá »
Innskrá »
 
Loading Uppfærir...
Búkolla

Búkolla

Lengd: 7:44

Íslenskt ævintýri

BúkollaNánar

Hljóðdæmi:

Efni sögunnar:
Kýrinn búkolla hverfur einn daginn og karl og kerling senda son sinn að leita hennar. Strákurinn kemst fljótlega á slóð kýrinnar og finnur hana að lokum í helli nokkrum. Tvær ægilegar skessur veita stráknum og Búkollu eftirför og eru stórstígar mjög. Strákur verður örvæntingarfullur en kýrin Búkolla á ráð undir rifi hverju. Eftir langa og stranga svaðilför verða skessurnar að steini og strákur kemst heilu á höldnu heim í kotið.


Verð: 200 kr

Dvergurinn og smaladrengurinn einfætti

Dvergurinn og smaladrengurinn einfætti

Lengd: 10:24

Íslenskt ævintýri

Endursögn: Kristjana Skúladóttir

Dvergurinn og smaladrengurinn einfættiNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Tólf ára fátækur smali á bóndabæ verður fyrir því að missa fót við hné og er því einfættur. Þegar hann situr yfir ánum útí náttúrunni fer hann að hugsa um hvort sögurnar um dvergana í steinunum séu sannar. Sögurnar sem segja að dvergarnir séu svo miklir læknar að töfrum sé líkast. Og það ótrúlega gerist, dvergarnir birtast drengnum og bjóða honum að laga fótinn…


Verð: 200 kr

Grámann í Garðshorni

Grámann í Garðshorni

Lengd: 16:57

Íslenskt ævintýri

Endursögn: Kristjana Skúladóttir

Grámann í GarðshorniNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar
Eftir hrakfarir sitja karl og kerling í kotinu uppi með einkennilegan gráklæddan náunga. Hann reynist þeim þó mikil búbót en þjófóttur líka. Hann þarf að gera upp skuldir sínar við kónginn með því að leysa þrautir sem kóngur leggur fyrir hann. Grámann reynist slunginn náungi og á snilldarlegan hátt nær hann þrisvar að bjarga lífi sínu með því að leysa þrautir kóngsins. Í verðlaun fær hann að giftast prinsessunni og kemur þá í ljós hver Grámann er í raun og veru.


Verð: 250 kr

Velvakandi og bræður hans

Velvakandi og bræður hans

Lengd: 8:37

Íslenskt ævintýri

Endursögn: Kristjana Skúladóttir

Velvakandi og bræður hansNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Bændasynir fimm sem bera nöfn sín með rentu fara út í heim að leita sér frama. Þeir fá það verkefni hjá kónginum að gæta dætra hans á jólanótt en tvær þeirra hafa áður horfið sporlaust. Bræðurnir lenda í átökum við tröllkarl ógurlegan, elta hann í hellinn og drepa hann og tröllkerlingu hans. Þeir frelsa týndu konungsdæturnar og sagan endar í fimmfaldri brúðkaupsveislu.


Verð: 200 kr

Sagan af kisu kóngsdóttur

Sagan af kisu kóngsdóttur

Lengd: 20:47

Íslenskt ævintýri

Endursögn: Kristjana Skúladóttir

Sagan af kisu kóngsdótturNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Bláklædd kona kemur barnlausum konungshjónum til hjálpar. Ekki vill þá svo betur til en drottningin fæðir bæði fagurt stúlkubarn og svartan kött. Kisa þessi er klók og lendir ásamt hinni fögru systur sinni í ýmsum ævintýrum. Á ferðum sínum dvelja þær í fjarlægu konungsríki sem hefur að geyma tvo gjörfulega konungssyni. Annar þeirra verður ástfanginn af hinni fögru kóngsdóttur en kisa vill sjálf fá að giftast hinum prinsinum. Kisa er þó ekki öll þar sem hún er séð heldur hvíla álög á henni og í ljós kemur hver hún er í raun og veru…


Verð: 250 kr