Galdrapotturinn
lengd: 5:28
Saga frá Rússlandi
Endursögn: Kristjana Skúladóttir
Hljóðdæmi
Efni sögunnar:
Fátæk stúlka fær gefins galdrapott sem er þeim eiginleikum gæddur að elda graut fyrir eigendur sína. Aðeins þarf að segja réttu töfraorðin til að láta pottinn byrja og hætta. Stúlkan og móðir hennar njóta góðs af potti þessum en eitt sinn þegar móðirin er ein heima, langar hana í graut. Ekki vill þá betur til en að mamman man ekki töfraorðin til að fá pottinn til að hætta. Grauturinn flæðir og flæðir og sagan ætlar að enda með ósköpum...
Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin
Verð: 150 kr