Sögur Fréttir
Nýskrá »
Innskrá »
 
Loading Uppfærir...
Höllin fyrir austan sól og vestan mána

Höllin fyrir austan sól og vestan mána

Lengd: 28:33

Norskt ævintýri

Þýðing: Jens Benediktsson

Höllin fyrir austan sól og vestan mánaNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Ísbjörn bankar uppá hjá bláfátækri og barnmargri fjölskyldu eitt kvöldið. Hann býður þeim ríkidæmi gegn því að fá yngstu dótturina gefins. Það verður úr og yngsta dóttirin leggur upp í ferðalag með ísbirninum. Ísbjörninn reynist þó vera prins í álögum en stúlkan kallar yfir þau mikla ógæfu með því að hunsa ráðleggingar hans.
Prinsinn hverfur og stúlkan á þann einan kost vænstan að leggja upp í ferðalag til að leita hans. Hún þarf að finna Höllina fyrir austan sól og vestan mána en þangað virðist ógerningur að komast.


Verð: 300 kr

Kötturinn og músin

Kötturinn og músin

Lengd: 3:40

Gömul saga

Texti: Kristjana Skúladóttir

Kötturinn og músinNánar

Köttur nokkur tekur sig til og bítur skottið af músinni. Músin heimtar að sjálfsögðu skottið sitt aftur en kötturinn vill að músin útvegi sér fyrst mjólk að drekka. Músin fer til kýrinnar en kýrin vill fá hey. Músin fer þá til bóndans en bóndinn vill fá kjöt. Músin fer þá til slátrarans en slátrarinn vill fá brauð. Músin fer þá til bakarans og bakarinn gefur músinni brauð og þá rennur keðjan til baka og músin fær loks skottið sitt aftur.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin.


Verð: 150 kr

Eldfærin

Eldfærin

Lengd: 22:24

Höfundur: HC Andersen

Þýðing: Steingrímur Thorsteinsson

EldfærinNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Sagan sígilda um dátann sem kemst í kynni við hundana þrjá með ógnarstóru augun. Með eldfærunum góðu gerast hundarnir þrír þjónar hans og láta allar óskir hans rætast. Hann eignast allt sem hugurinn girnist en heitast óskar hann þó þess að fá að sjá kóngsdótturina fögru. Sú bón hans reynist dýrkeypt og dátanum er varpað í svartholið.


Verð: 250 kr

Andfúla ljónið

Andfúla ljónið

Lengd: 4:39

Texti: Kristjana Skúladóttir

Andfúla ljóniðNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Ljónið, konungur dýranna vaknar bæði andfúll og skapfúll. Því miður fá dýrin í kringum hann heldur betur að kenna á skapvonsku hans. Hann innir þau eftir skoðunum varðandi andremmuna en beittar vígtennur hans eru ekki umflúnar, sama hverju þau svara honum. Að lokum er það lítil kanína sem gerir ljónið kjafstopp og bjargar þannig lífi sínu.


Verð: 150 kr

Gullbrá og birnirnir þrír

Gullbrá og birnirnir þrír

Lengd: 6:28

Texti: Kristjana Skúladóttir

Gullbrá og birnirnir þrírNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Litla stúlkan hún Gullbrá er enn á ferð um skóginn og heimsækir hér birnina þrjá. Þeir hafa brugðið sér í skógarferð á meðan grauturinn þeirra kólnar en Gullbrá bregður sér inn og gerir bara það sem henni dettur í hug.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 150 kr

Mjallhvít og dvergarnir sjö

Mjallhvít og dvergarnir sjö

Lengd: 16:19

Grimms ævintýri

Þýðing: Kristjana Skúladóttir

Mjallhvít og dvergarnir sjöNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Vonda stjúpmóðirin öfundar Mjallhvíti af fegurð hennar og reynir að koma henni fyrir kattarnef. En Mjallhvít flýr inn í skóginn og endar í húsi dverganna sjö. Vonda stjúpmóðirin er samt ekki á því að gefast upp og með hjálp töfraspegilsins kemst hún að því hvar Mjallhvít dvelur. Hún leggur á ráðin að losa sig við Mjallhvíti fyrir fullt og allt.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 250 kr

Geiturnar þrjár

Geiturnar þrjár

Lengd: 3:58

texti: Kristjana Skúladóttir

Geiturnar þrjárNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Sagan sígilda um geiturnar sem vilja komast yfir brúnna og ljóta tröllið sem býr þar undir. Geitafjölskyldan á ráð undir rifi hverju og nær með kænsku og kröftum að snúa á tröllið.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 150 kr

Galdrapotturinn

Galdrapotturinn

lengd: 5:28

Saga frá Rússlandi

Endursögn: Kristjana Skúladóttir

GaldrapotturinnNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Fátæk stúlka fær gefins galdrapott sem er þeim eiginleikum gæddur að elda graut fyrir eigendur sína. Aðeins þarf að segja réttu töfraorðin til að láta pottinn byrja og hætta. Stúlkan og móðir hennar njóta góðs af potti þessum en eitt sinn þegar móðirin er ein heima, langar hana í graut. Ekki vill þá betur til en að mamman man ekki töfraorðin til að fá pottinn til að hætta. Grauturinn flæðir og flæðir og sagan ætlar að enda með ósköpum...

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 150 kr

Svanirnir sex

Svanirnir sex

Lengd: 15:59

Grimms ævintýri

Þýðing: Kristjana Skúladóttir

Svanirnir sexNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Kóngur nokkur á sex syni og eina dóttur. Hann óttast að hin illgjarna stjúpa þeirra vinni þeim mein og felur börnin sín í skógarkastala. En hin vonda stjúpa finnur kastalann og með göldrum breytir hún drengjunum í svani. Systir þeirra er staðráðin í að leysa bræður sína úr álögum en það verkefni krefst mikilla fórna í heil sex ár.
Hún giftist kóngi úr næsta ríki en lendir í miklum hremmingum áður en henni tekst að leysa bræður sína úr álögum.


Verð: 250 kr

Þyrnirós

Þyrnirós

Lengd: 11:22

Grimms ævintýri

Þýðing: Kristjana Skúladóttir

ÞyrnirósNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Þegar lítil prinsessa fæðist, ríkir mikil gleði í höllinni og kóngurinn faðir hennar býður til veislu. Þar mæta 12 heilladísir en sú 13. mætir óboðin og leggur á barnið að það skuli stinga sig á snældu og sofa í 100 ár. Óheillaspáin rætist þegar prinsessan er 15 ára og allt líf í höllinni sofnar með henni. Þyrniskógurinn vex og vex og færir höllina í kaf. Í áranna rás reyna ýmsir kappar að komast í gegnum banvænt þyrnigerðið en að 100 árum liðnum kemur hinn ungi konungsson sem reynist heppnari en hinir og hann ætlar sér að líta augum hina fögru Þyrnirós hvað sem það kostar.


Verð: 200 kr

Stígvélaði kötturinn

Stígvélaði kötturinn

Lengd: 16:18

Grimms ævintýri

Þýðing: Þorsteinn Thorarensen

Stígvélaði kötturinnNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Malarasonur fær aðeins einn kött í arf eftir föður sinn og finnst það ansi súrt. Köttur þessi er þó staðráðinn í að bæta hag húsbónda síns. Hann reynist klókur og útsmoginn og kemur sér í mjúkinn hjá kónginum. Með hjálp kattarins breytist malarasonurinn fátæki í forríkan greifa og þá er kóngsdóttirin fagra ekki langt utan seilingar…


Verð: 250 kr

Fríða og dýrið

Fríða og dýrið

Lengd: 20:34

Ævintýri frá Frakklandi

Endursögn og þýðing: Kristjana Skúladóttir

Fríða og dýriðNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Faðir þriggja dætra lendir í kastala þar sem ægileg ófreskja býr. Ófreskjan þyrmir lífi hans en krefst þess að hann sendi eina dóttur sína til sín í staðinn. Úr verður að yngsta dóttirin Fríða fer í höll ófreskjunnar. En dýr þetta reynist ekki eins hræðilegt og við mátti búast og brátt kemst Fríða að því að undir þessu hræðilega útliti leynist gott hjarta. Með þeim tekst vinátta og Fríðu fer að þykja vænt um þennan vin sinn. Dýrið hefur þó fleira í hyggju og sagan tekur óvænta stefnu þegar Fríða svíkur loforð sitt við dýrið…


Verð: 250 kr

Þumalingur

Þumalingur

Lengd: 22:40

Grimms ævintýri

Þýðandi: Þorsteinn Thorarensen

ÞumalingurNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Hjón nokkur eiga sér þá ósk heitasta að eignast barn. Þeim verður að ósk sinni en drengurinn sem þau eignast er á stærð við þumalfingur. Hann er þó hinn mesti skýrleikspiltur og duglegur í alla staði. Hann fer í ferðalag um heiminn og lendir í allskyns hremmingum en alltaf tekst honum að bjarga sér úr hinum ýmsu vandræðum.


Verð: 250 kr