Sögur Fréttir
Nýskrá »
Innskrá »
 
Loading Uppfærir...
Töfrar Afríku

Töfrar Afríku

Lengd: 18:15

Höfundur: Kristjana Skúladóttir

Töfrar AfríkuNánar

Efni sögunnar:

Kabar og Salí eru systkini sem búa í þorpi einu í Afríku. Þau eru líka bestu vinir og bæði vinna og leika sér saman. En Gumbar er hrekkjóttur 12 ára strákur sem gerir systkinunum lífið leitt og notar hvert tækifæri til að stríða þeim. Krakkarnir vilja ná sér niðri á Gumbar og þegar gamli töfralæknirinn í þorpinu lánar þeim töfragrip fá þau tækifæri til að hefna sín. Systkinin komast svo að því að hefndin er ekki alltaf besta ráðið.


Verð: 250 kr

Íkorninn og hnetan

Íkorninn og hnetan

lengd: 12:46

Höfundur: Kristjana Skúladóttir

Íkorninn og hnetanNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Svangur íkorni finnur hnetu og fer með hana heim. En hnetunni hans er stolið og hann fer af stað í leit að þjófnum. Á leið sinni hittir hann Skjaldböku, mús og kónguló og íkorninn hjálpar þeim öllum á einhvern hátt. Í staðin vísa þær á hnetuþjófinn sem er skrautlegur páfagaukur. Þegar íkorninn loks finnur páfagaukinn og hnetuna sína fær hann meiri áhuga á eggjum páfagauksins. Hann þarf svo að eiga við sína eigin samvisku þegar hann sér örvæntingu páfagauksins.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 200 kr

Remúlus flækingsköttur

Remúlus flækingsköttur

Lengd: 21:04

Höfundur: Kristjana Skúladóttir

Remúlus flækingskötturNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Remúlus og Dúna eru flækingskattahjón sem eiga von á kettlingunum sínum í heiminn. Það er fimbulkuldi og í örvæntingu laumast þau inn í híbýli fólks og fela sig þar inní skáp. Þar gýtur Dúna tveimur ketlingum. Þau lifa í ótta um að finnast inn í skápnum og vera hent út í frostið en eignast óvæntan vin sem býr í húsinu. Það er lítil manneskja sem verður bjargvætturinn þeirra.


Verð: 250 kr