Sögur Fréttir
Nýskrá »
Innskrá »
 
Loading Uppfærir...
Kötturinn og músin

Kötturinn og músin

Lengd: 3:40

Gömul saga

Texti: Kristjana Skúladóttir

Kötturinn og músinNánar

Köttur nokkur tekur sig til og bítur skottið af músinni. Músin heimtar að sjálfsögðu skottið sitt aftur en kötturinn vill að músin útvegi sér fyrst mjólk að drekka. Músin fer til kýrinnar en kýrin vill fá hey. Músin fer þá til bóndans en bóndinn vill fá kjöt. Músin fer þá til slátrarans en slátrarinn vill fá brauð. Músin fer þá til bakarans og bakarinn gefur músinni brauð og þá rennur keðjan til baka og músin fær loks skottið sitt aftur.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin.


Verð: 150 kr

Fyrsti vefur litlu kóngulóarinnar

Fyrsti vefur litlu kóngulóarinnar

Lengd: 4:31

Texti: Kristjana Skúladóttir

Fyrsti vefur litlu kóngulóarinnarNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Þetta er lítil saga úr náttúrunni sem segir frá því hvernig smádýrin gleðjast yfir því að litla kóngulóin skuli vera að vefa sinn allra fyrsta vef. Gleðin breiðist út og bæði dýr og börn kætast.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin.


Verð: 150 kr

Gullbrá og birnirnir þrír

Gullbrá og birnirnir þrír

Lengd: 6:28

Texti: Kristjana Skúladóttir

Gullbrá og birnirnir þrírNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Litla stúlkan hún Gullbrá er enn á ferð um skóginn og heimsækir hér birnina þrjá. Þeir hafa brugðið sér í skógarferð á meðan grauturinn þeirra kólnar en Gullbrá bregður sér inn og gerir bara það sem henni dettur í hug.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 150 kr

Mjallhvít og dvergarnir sjö

Mjallhvít og dvergarnir sjö

Lengd: 16:19

Grimms ævintýri

Þýðing: Kristjana Skúladóttir

Mjallhvít og dvergarnir sjöNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Vonda stjúpmóðirin öfundar Mjallhvíti af fegurð hennar og reynir að koma henni fyrir kattarnef. En Mjallhvít flýr inn í skóginn og endar í húsi dverganna sjö. Vonda stjúpmóðirin er samt ekki á því að gefast upp og með hjálp töfraspegilsins kemst hún að því hvar Mjallhvít dvelur. Hún leggur á ráðin að losa sig við Mjallhvíti fyrir fullt og allt.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 250 kr

Íkorninn og hnetan

Íkorninn og hnetan

lengd: 12:46

Höfundur: Kristjana Skúladóttir

Íkorninn og hnetanNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Svangur íkorni finnur hnetu og fer með hana heim. En hnetunni hans er stolið og hann fer af stað í leit að þjófnum. Á leið sinni hittir hann Skjaldböku, mús og kónguló og íkorninn hjálpar þeim öllum á einhvern hátt. Í staðin vísa þær á hnetuþjófinn sem er skrautlegur páfagaukur. Þegar íkorninn loks finnur páfagaukinn og hnetuna sína fær hann meiri áhuga á eggjum páfagauksins. Hann þarf svo að eiga við sína eigin samvisku þegar hann sér örvæntingu páfagauksins.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 200 kr

Geiturnar þrjár

Geiturnar þrjár

Lengd: 3:58

texti: Kristjana Skúladóttir

Geiturnar þrjárNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Sagan sígilda um geiturnar sem vilja komast yfir brúnna og ljóta tröllið sem býr þar undir. Geitafjölskyldan á ráð undir rifi hverju og nær með kænsku og kröftum að snúa á tröllið.

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 150 kr

Galdrapotturinn

Galdrapotturinn

lengd: 5:28

Saga frá Rússlandi

Endursögn: Kristjana Skúladóttir

GaldrapotturinnNánar

Hljóðdæmi

Efni sögunnar:
Fátæk stúlka fær gefins galdrapott sem er þeim eiginleikum gæddur að elda graut fyrir eigendur sína. Aðeins þarf að segja réttu töfraorðin til að láta pottinn byrja og hætta. Stúlkan og móðir hennar njóta góðs af potti þessum en eitt sinn þegar móðirin er ein heima, langar hana í graut. Ekki vill þá betur til en að mamman man ekki töfraorðin til að fá pottinn til að hætta. Grauturinn flæðir og flæðir og sagan ætlar að enda með ósköpum...

Sagan er auðskilin fyrir yngstu börnin


Verð: 150 kr