Grámann í Garðshorni
Lengd: 16:57
Íslenskt ævintýri
Endursögn: Kristjana Skúladóttir
Hljóðdæmi
Efni sögunnar
Eftir hrakfarir sitja karl og kerling í kotinu uppi með einkennilegan gráklæddan náunga. Hann reynist þeim þó mikil búbót en þjófóttur líka. Hann þarf að gera upp skuldir sínar við kónginn með því að leysa þrautir sem kóngur leggur fyrir hann. Grámann reynist slunginn náungi og á snilldarlegan hátt nær hann þrisvar að bjarga lífi sínu með því að leysa þrautir kóngsins. Í verðlaun fær hann að giftast prinsessunni og kemur þá í ljós hver Grámann er í raun og veru.
Verð: 250 kr